Opinn fundur fjárlaganefndar föstudaginn 29. apríl um sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka
Fjárlaganefnd Alþingis heldur opinn fund föstudaginn 29. apríl í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 kl. 8:30 til 9:30.
Fundarefnið er sala ríkisins á hlutum í Íslandsbanka. Gestir fundarins verða Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurður H. Helgason skrifstofustjóri og Haraldur Steinþórsson lögfræðingur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.